05janúar

Eða bara gamla ég.  www.kvikvi.blogspot.com
 
05. janúar 2007 klukkan 05:14
Gunnsan
Engin athugasemd
05janúar

Ég er hætt

Er ekki að fíla þetta kerfi... Velkomin á gamla staði.
hér
05. janúar 2007 klukkan 05:12
Gunnsan
Engin athugasemd
31desember

Nú árið er liðið í aldanna skaut

og aldrei það kemur til baka.

Jamm og er það ekki bara gott. Tími til að taka sér eitthvað nýtt fyrir hendur. Eða þannig. Gleðilegt ár elskurnar mínar. Hafið það sem allra best og passið ykkur á eldinum, og munið eftir að sleppa prikinu. Heyrumst á nýju ári.

Gunnsan@áramótakveðja.is
31. desember 2006 klukkan 22:14
Gunnsan
Engin athugasemd
24desember

Jóli komin..

Kæru vinir nær og fjær.

Sendi ykkur mínar bestu jólakveðjur. Hafið það sem allra best og njótið fjölskyldunnar.  Passið að borða ekki gat á mallann. Kiss kiss...
Gunnsan@jólastuð.is
24. desember 2006 klukkan 22:09
Gunnsan
3 athugasemdir
23desember

Úff mar

Nú er það ljótt. Klukku fja..... orðin allt of margt og mín ekki farin að sofa. Blövað næturbrölt á stelpunni. Alveg að tapa sér í þrifum, þvotti og látum. Allt skal vera hvítskúrað og sjæní á jólum. Sama saga. Ár eftir ár. Búin að þrífa sjónvarpsherberigð hátt og lágt. Diddinn búin að þrífa baðherbergið. Skildi reyndar gólfið eftir handa minni. Geri það bara á morgun. Fórum í Bónus og versluðum flest allt sem þar þurfti. Geleymdum örfáum hlutum. Reddum því á morgun. Ekki málið. Fórum líka í Smáralindina í leit að fötum á erfðaprinsinn. Ekki léttasta verkið í heimi. Hann er algjörlega með það á hreinu hvað hann vill og hvað ekki. Gengum búð úr búð og fundum ekkert. Hann vill sko bara jakkaföt. Þau skulu vera svört, einlit og úr svona venjulegu jakkafataefni. Ekki flauel eða neitt slíkt. Enduðum þessa leit okkar í Retro og þar fundust fermingarföt uppi á lofti síðan í vor og loksins var eitthvað til sem drengsa líkaði. Eins gott að hann passi líka í þau 1 apríl. Það verða sko ekki keypt önnur fyrir fermingu. hehehe... En að öðru leyti hefur allt verið verslað sem versla þarf og er það gott. Klára að þrífa á morgun og skreyta tréð og þá er þetta bara komið. Eða nei. Gleymdi einu. Það á enn eftir að finna skó á drenginn. Annað vandamál sem verður að leysa á morgun. Gekk Kringluna alla um dagin með honum og bilíf it or not. Kringlan átti enga skó sem honum líkaði. Hvernig er þetta hægt. Hann er sko ekki sonur móður sinnar að þessu leyti. Ætli ég hafi ekki séð svona 10 til 20 pör sem ég gat hugsað mér. Og ekki var ég að leyta að skóm á mig. Össsss.... Algjörleg sjúkt. Og svo er mín bara sennilega búin að fá skrifstofujobb. Jebb. Skólinn bara að borga sig strax. En segi ekki meir um það að sinni. Læt vita þegar búið er að naglfesta þetta. Býð svo góðrar nætur. Eigið fallega drauma elskurnar, svona það sem eftir lifir nætur.

Gunnsan@næturbrölt.is

23. desember 2006 klukkan 11:18
Gunnsan
1 athugasemd
19desember

Útskrifin

búin og stelpunni gekk bara vel. Fengum 7.5 fyrir lokaverkefnið og erum sko bara sáttar við það. Fórum svo heim til einnar og borðuðum saman. Heljarinnar partýi startað og mikið sungið. Hrikalega skemmtilegt. Spilað á tvo gítara og svona. Og mín tók meiraðsegja í gripinn. Greinilegt samt að það er allt of langt síðan ég hefi slegið saltfiskinn. Kannski að maður ætti að fara að æfa sig svona stundum. Svo bara þynka og læti á sunnudaginn. Vinna í dag. Og svo bara óvænt matarboð hér á bæ. Spúsinn búinn að bjóða öllu slektinu í mat. Eldaði hér dýrindis humarsúpu, a la Diddi. Og ekki nóg með það. Haldiði ekki að mér hafi verið færður hér gullhringur frá le family. Mín var sko bara alveg feimin og læti. Góður dagur í alla staði. Svo er stefnan sett á jólagjafainnkaupaleiðangur seinni part á morgun. Ætlum að klára dæmið. Er búin með bróðir og hans pípúl. Sendi það með ma og pa. Kveð að sinni.

Gunnsan@tómhamingja.is
19. desember 2006 klukkan 07:05
Gunnsan
1 athugasemd
16desember

Jæja þá í þetta sinn

er þaggi. Eða þannig. Ha. Bull og bull. Búnar að skila af okkur lokaverkefninu. Hjúkk mar. Stress aldarinnar í gangi þar. Þurftum að standa upp við töflu og kynna dótið. Og mín bara svitnaði og skalf. 8 á ricther. Andlitið eins og fallegasta jólaepli. Úff púff. Erfitt mar, en rosa gaman eftirá. Samt vorum við frekar svektar, vegna þess að annar dómarinn í þessu verkefni sagði bara "ég er bara alveg orðlaus, eigum við ekki bara að klappa fyrir þeim". Ha. Kom með spurningar á alla hina hópana, svo nú er spennandi að sjá og heyra á morgun hvort orðlaus sé af hinu góða eða slæma. Óákveðinn Útskriftin á morgun og svo ætlum við heim til einnar og borða saman. Voða gaman. Fór í Kringluna í dag að kaupa jólagjöf handa Gyrði Erni og reyna að finna skó á drenginn minn. Fann enga skó á minn mann. Ekkert sem honum líkaði. Frekar erfiður þessi elska. Fann jólagjöfina handa Gyrði og líka kjól á mig. Já haldið ykkur bara. Hún ég kaupti sér kjól. Sonurinn alveg að tapa sér á þessari eyðslu í mömmsunni. Mér fanst hann sko ekkert dýr. 7800 krónur í Stasiu. Ógisslega flottur. Fór svo í klipp og lit í dag. Loksins. Orðin rauð eins og Solla stirða. Eða ætti ég kanski að segja bleik. hehehehe..... Tónleikarnir á miðvikudaginn voru sko bara flottir. Og mín var obboslega dúleg og söng sko bara með. Þykir það frekar gott þar sem að ég hef ekki mætt nema á svona 6 til 7 æfingar í allt haust. Og minnst á jólaæfingar. Kannski 2. Hjarta mitt orðið fullt af jólum, svo nú mega þau sko koma. Spánardrósin og Kle komu hér í kvöld. Færðu konunni eina rauða. Svo sæt. Hrikalega gaman að hitta þau aftur og spjalla. Ekki frá því að bitrukellingafélagið hafi tekið sér bólfestu í oss í smá stund hér í kvöld. Enda ekki vanþörf á. En nú skal jeg í seng.
Gunnsan@orðlaus.is
16. desember 2006 klukkan 09:00
Gunnsan
Engin athugasemd
10desember

Rákum

smiðshöggið á lokaverkefnið í morgun, fyrir utan það að við eigum eftir að setja inn texta með skyggnikynningunni fyrir okkur. Svona stikkorð að tala um. Eða eitthvað svoleiðis. Við voða kátar með okkur. Svo kem ég heim með mitt eintak og fer að sýna kalli. Og hvað sé ég.   FJÓRAR stafsettningarvillur. Svo nú verðum við að prenta þetta allt út aftur. Ekki hægt að skila þessu svona til kennara. Neibb. Rétt skal það vera.  Ríkey mín gat ekki reddað stelpunni Gráta svo það verður svo að vera. En held nú samt að hún geti reddað mér fyrir jól. En þar sem ég var nú orðin í mestu vandræðum með augabrúnirnar mínar fínu, farin að flétta þær í miðju svo ég sæi út. Að þá tók ég mig til í kvöld og reyndi sjálf. Er algjörlega orðin handlama af öllu þessu plokki. Þurfti að moka mig upp úr hárunum til að komast upp úr stólnum. Og nú eru þær alveg orðnar HVÍTAR. Allur litur farin úr þeim. Shitt. Svo það er eins gott að RP reddi stelpunni. Og það fljótt. Léttutónleikarnir í dag. Og var bara voða gaman. Fékk smá jólafíling í hjartað mitt litla. Svo afmæli hjá ljúfunni litlu á morgun. 1 árs, órtúlegt en satt. Tíminn flýgur frá manni. Svo ég þarf að skella í heitann og búa til rækjusalat og svona dót á morgun. Mætti samt halda að barnið væri að fermast. 30 manna partý. God, þvílíkt og annað eins. Sé eiginlega ekki fram á að ég syngi með á tónleikunum á miðvikudaginn. Er búin að missa af öllum æfingum, og þótt svo að ég kunni flest lögin er voða gott að rifja þau aðeins upp fyrir frumsýningu eða þannig. Svo ætli ég mæti bara ekki og hlusta á þessar dásemdar konur mínar. Svo þarf að fara að huga að jólagjafainnkaupum. Ekki byrjuð á þeim pakka. En þetta reddast allt. Gerir það, það ekki alltaf. Rautt í tilefni jólanna.
Gunnsan@augnabrúnaplokkaridauðans.is
10. desember 2006 klukkan 08:07
Gunnsan
1 athugasemd
08desember

Well well.

Skólinn aftur í kvöld. Gekk bara vel núna. Allt að smella saman. Bara eftir að reka smiðshöggið á þetta og æfa sig svo í að kynna draslið. Shitt hvað ég verð glöð þegar þessu er lokið. Verð örugglega í spennufalli á þriðjudagskvöldið. hehehe.... Ætla svo að sofa í viku eða svo. Hringdi í Ríkeyju mína og ætlaði að dobbla hana í Extream makeover á morgun. Alltaf svo tímalega í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Er búin að hugsa í mánuð um að nú verði ég að fara að hringja og fá tíma. En nei. Ekki fyrr en í kvöld og eini tíminn sem ég hef í þetta er á morgun. Og hún þessi elska náttla fullbókuð. Ekki að spyrja að því. Jólin handan við hornið og svona. En hún ætlar að athuga hvort hún geti garlað á morgun að einhver sem á tíma klukkan þrjú, bara í klipp geti komið örlítið seinna. Svo nú er bara að bíða og vona. Og ég er náttla klikk að vera ekki farin að sofa. Klukkan orðin eitt og mín á að vakna 6.20. Ohhhh mig laaaannnnggggarrrr svo að sofa út. Geri það á sunnudaginn. Tónleikar hjá Léttum á laugardaginn. Afmæli hjá Þórunni Emilíu á sunnudaginn. Skóli á laugardagsmorguninn, general prufa fyrir tónleika á mánudaginn. Skiladagur lokaverkefnis á þriðjudaginn og tónleikar á miðvikudaginn. Hvíldardagur á fimmtudaginn. Jibbý kóla.
Gunnsan@góðanótt.is
08. desember 2006 klukkan 07:11
Gunnsan
1 athugasemd
07desember

Hmmmm

Jamm hef svona verið að spá í eitt og annað. Hvað er verið að kenna börnunum okkar í þessu endalausajólatrjáagjafaskreytingapappírsljósaauglýsingarflóði. Mér er sko bara spurt. Við sonurinn vorum að spjalla saman á leiðinni inn úr bilnum í dag. Um jólaljós og svona. Vinkona hans ein sem býr hér í blokkinni er frá Króatíu og halda þau engin jól. En þau eru samt með "jólaljós" á svölunum. Af því að Fjóna "vinkonan" vill það. Og þá fer minn maður að segja að annars væru þau sko þau einu sem ekki væru með ljós af einhverju tagi. Hvort sem væri á svölum eða í glugga. Og ég alveg nei hvaða vitleysa. Það er alveg hægt að halda jól án þess að vera með ljós. Og hann sko nei. Það er svooooo halló. Þá bara eru sko engin jól. Mín reynir að malda í móinn að það sé fullt af fólki sem haldi jól án ljósa. En nei. Ekki til að tala um. Svo sit ég hér og er að tengja mig hér inn þá ómar þessi líka fína augýsing frá teleskópinu. "Stærðin skiptir máli. Stærri jólatré blablablablablablablabla...... Hvaða fockings máli skiptir stærðin. Mér er tví spurt. Líður okkur eitthvað betur ef tréð er svo stórt að það svigni undan loftinu á kofanum. Koma jólin ekki í hjartað ef engin eru ljósin. Sumum finnast þessi ljós bara óþarfi. Og er það bara ekki í lagi. Og hvað er þetta svo með þessar svörtu aðventuskreytingar. Er ekki allt í lagi með fólk. Þetta er eins og að sitja við jarðarför. Er ekki mál að lífga frekar aðeins upp á hversdagsleikan með glaðlegum litum. Mér þrí spurt. Ekki það að hér er allt logandi í jólaljósum hægri vinstri. Jólaglugginn minn kominn á sinn stað (myndi setja mynd af honum hér ef ég bara kynni það) englar og jólasveinkar út um allt. En það er bara hobbý hjá mér. Minni finnst það svooo sæt. Ekki af því að það er skylda. No no... Annar er allt fína að frétta af þessum bænum. Skólinn alveg að verða búinn. Erum að vinna í lokaverkefninu núna.
 Var samt frekar frosin í skólanum í gærkvöldi. Sama hvað ég gerði einni í hópnum líkaði það ekki. Mér finnst þetta ljótt, heyrðu kennari er ekki málið að hafa textann sem stystann. Bara svona stikkorð. Er ekki betra að hanna templatið sjálfar, frekar en að nota tilbúið. Er ekki betra að hafa bakgrunninn alveg hvítan ha. Blablablablablablabla..... Vill hún ekki bara sjá um þetta. Og mín er svo fötluð að þegar mér mislíkar eitthvað svona við fólk sem ég þekki ekki vel en verð að vinna með að þá bara þegi ég. Sú þriðja í hópnum sá hins vegar hvernig mér leið. Kennarasleikja, kennarasleikja.......Fór til Sillunar minnar í kvöld að afhenda tónleikamiða og fá aðra í staðin. Kom að sjálfsögðu klyfju heim af kertum og dóti. Alltaf eins og ég sé að flytja þegar ég fer þaðan. Alveg einkennilegt. Pantað mér Ipod micrafone hjá henni sem brósinn hennar ætlar að kaupa fyrir mig í USA. Hljóðgæðin eru eins og í besta studioi. Eitthvað annað en þetta helv.... digital upptökutæki sem við stöllur fengum okkur hér um árið. Tilkynnti Eggert boss að ég þyrfti frí í einn dag 14 des. Þyrfti að hvíla mig eftir skólalok og tónleika. Myndi svo bara koma aftur eftir áramót. hehehe...En ég fæ frí. lalalalalalala....... En nú er þetta orðið ágætt góðu hálsar nær og fjær. Ætla að lúlla í hausinn á mér með fína grjónapúðann sem vildi koma heim með mér frá Sillu. Didda besta skinn þetta var bara fyrir þig. Lov jú big...
Gunnsan@ZZZZzzzzzz.is
07. desember 2006 klukkan 06:20
Gunnsan
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Lífið mitt á blogspot.com

Vinkonubarnabloggin